Skilmálar
Upplýsingar
Studio 54
Laugavegur 48b
101 Reykjavík
S: 767-5454
Kt: 540125-1470.
Reikningsnr. 0133-15-010462 Netfang: s54@s54.is
Instagram: http://instagr.com/studio_54
Afhending og áhættuskipti
Afgreiðslutími pantana er 1-3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað.
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Vörur eru að öllu jafna póstlagðar 2 næstu virka daga eftir pöntun. Hægt er að sækja pantanir í verslun Studio 54 og erum við með opið frá 9-16 alla virka daga.
Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en kaupandi hefur greitt fyrir vöruna. Studio 54 ber fulla ábyrgð á vöru þar til hún telst afhend til kaupanda.
Sæki kaupandi vöru ekki á tilsettum tíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann ber ábyrgð á, flyst áhættan yfir á kaupanda þegar hlutur er honum til reiðu á umsömdum afhendingarstað. Ef samið hefur verið um annan afhendingarstað en hjá seljanda flyst áhættan yfir til kaupanda þegar varan er afhent á umsömdum tíma og stað og kaupanda er kunnugt um að varan er tilbúin til afhendingar.
Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.
Greiðsla og sendingarkostnaður
Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum, American Express, aur korti eða með millifærslu. Í verslun Studio 54 verslun er hægt að greiða með Aur og öllum greiðslukortum nema.
Ef greitt er með kredit-, debetkortum í gegnum örugga greiðslusíðu er korthafi fluttur á viðeigandi vef þegar kemur að greiðslu. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Studio 54 tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.
Óski kaupandi eftir því að greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Studio 54 ehf innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á s54@s54.is. Berist greiðsla ekki innan þess tíma er pöntunin ógild. Reikningsnúmer er 0133-15-010462 kt: 540125-1470.
Sendingakostnaður er reiknaður í greiðsluferli. Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 15.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Nánar um afhendingarleiðir.
Verð
Studio 54 áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Vöruskil
Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Studio 54.
Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á s54@s54.is en getur einnig nýtt sér staðlað uppsagnareyðublað sem finna má hér: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/435-2016
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á s54@s54.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru eru tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Öll umferð um s54.is er dulkóðuð yfir örugga tengingu (HTTPS).
Fyrirvari
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.
Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á s54@s54.is
Vefverslunin Studio 54 / s54.is er rekin af studio 54 ehf., lögheimili Neshagi 5, 107 Reykjavík, kt: 540125-1470